Konur á móti körlum í Útsvarinu í kvöld
Skagfirðingar og Eyjamenn eigast við í Útsvarinu í kvöld og má búast við hörkukeppni. Skagfirðingar tefla fram breyttu liði frá síðasta vetri sem eingöngu er skipað kvenmönnum en það mun vera í fyrsta sinn sem það gerist í keppninni.
Lið Vestmannaeyja er hins vegar skipað sömu einstaklingum og áður, þeim Gunnari Gunnarssyni, Ágústi Erni Gíslasyni og Sveini Waage. Í liði skagfirðinga eru þær Guðrún Helgadóttir prófessor við Háskólann á Hólum, Guðrún Rögnvaldardóttir framkvæmdarstjóri hjá Staðlaráði og Erla Björt Björnsdóttir háskólanemi.Guðrún var á leiðinni suður þegar blaðamaður Feykis náði í hana upp úr klukkan tvö í dag og var mikil dulúð yfir hernaðaráætlun liðsins. –Það má ekki gefa of mikið upp en við erum búnar að æfa táknmálin og ýmis brögð, sagði Guðrún sem ekki vildi upplýsa hver þeirra myndi leika eða hlaupa. Um mótherjana vissi Guðrún lítið en sagði að efalaust væru þar prýðispiltar á ferðinni.
Þá er bara að setjast fyrir framan skjáinn í kvöld og fylgjast með skagfirsku konunum taka Eyjapeyjana í kennslustund.