Körfuknattleiksdeild Tindastóls og Smárinn í samstarf
Körfuknattleiksdeild Tindastóls og Ungmenna- og íþróttafélagið Smári í Varmahlíð, hafa gert með sér samkomulag um að Tindastóll sjái um körfuboltaæfingar í Varmahlíð fyrir börn og unglinga.
Æfingar verða einu sinni í viku, á föstudögum kl. 13.30-15.30. Tindastóll útvegar þjálfara á æfingarnar og mun Pálmi Geir Jónsson sjá um þær í vetur. Æfingarnar verða tvískiptar, 6. bekkur og yngri fyrri klukkutímann og 7. bekkur og eldri seinni klukkutímann.
Stefnt er á þátttöku yngri krakkanna í Króksamótinu 12. nóvember, en allir iðkendur í Varmahlíð geta mætt á æfingar hjá sínum aldursflokkum hjá Tindastóli án endurgjalds.
Æfingar hefjast á föstudaginn eftir viku