Kormákshlaup 2013

Umf. Kormákur á Hvammstanga stendur nú fyrir götuhlaupum en fyrsta hlaupið var þreytt sumardaginn fyrsta og þann 1. maí sl. en tvö hlaup eru eftir. Keppt er í sex flokkum karla og kvenna, um þrenn verðlaun í hverjum flokki. „Allir með - ungir sem aldnir,“ segir í Sjónaukanum.

Til að eiga möguleika á verðlaunum fyrir sæti þurfa keppendur að taka þátt í þrem hlaupum af fjórum og ræður þá tími í þrem hlaupum röð keppenda, samkvæmt auglýsingum í nýjasta eintaki Sjónaukans. Allir þátttakendur fá viðurkenningu fyrir þátttöku.

Hlaupið er frá Félagsheimilinu Hvammstanga en næstu Kormákshlaup verða:

Uppstigningardag 9. maí kl. 11:00
Laugardaginn 17. maí kl. 11:00, verðlaunaafhending að því loknu.

Hlaupvegalengdir

Aldursflokkar Karlar Konur

Fædd 2006 og síðar 300m 300m
Fædd 2003 - 2005 600m 600m
Fædd 2000 - 2002 800m 800m
Fædd 1997 - 1999 800m 800m
Fædd 1987 - 1996 800m 800m
Fædd 1986 og fyrr 800m 800m

„Mætið tímanlega til skráningar!  Þeir sem hlaupa 800m keppa um bikar sem gefinn var af Göngufélaginu Brynjólfi til minningar um Bjarka Heiðar Haraldsson. Skal keppandi taka þátt í a.m.k. 3 hlaupum af 4, en einstakur tími ræður úrslitum samkv. stigtöflu FRÍ,“ segir loks í auglýsingu.

Fleiri fréttir