Kórsöngur góður fyrir hjartað
Þegar söngfélagar syngja saman sem einn maður samræmist hjartsláttur þeirra hvort sem hægist á honum eða herðir á honum, að því er sænskir vísindamenn hafa fundið út og sagt er frá í vefútgáfu Telegraph.
Rannsóknin gæti útskýrt hvers vegna kórsöngur er sagður vera góður fyrir heilsuna, vegna þess að líklegt sé að minni breytileiki í hjartsláttartíðni sé góður fyrir líðan þína, er haft eftir þeim.
Þetta bendir einnig til að söngur geti bætt andann og samvinnu í hóp þar sem það hefur áhrif á Vagus taugina sem tengist tilfinningum og samskiptum við aðra, samkvæmt rannsókninni sem birt var í Frontiers in Neuroscience Journal.
Vísindamennirnir sem voru frá Háskólanum í Gautaborg, skoðuðu hjartslátt fimmtán 18 ára kórsöngvara sem sungu þrjár mismunandi raddæfingar: hummuðu, sungu sænska sálminn „härlig är Jorden“ og að lokum söngluðu þeir möntru.
Niðurstöðurnar til samans voru þær að að laglínan og uppbygging tónlistarinnar hafði bein áhrif á hjartalátt söngvaranna og samhljómurinn leiddi það af sér að hjartsláttur þeirra hækkaði og lækkaði á sama tíma.
Mantran eða sönglið sem þeir sungu, sem ólíkt hinum lögunum neyddi þá til að anda inn og út á sama tíma, reyndist hafða mest áhrif.
Björn Vickhoff, sem leiddi rannsóknina, segir „Söngurinn stjórnar virkni í vagus tauginni sem tengist tilfinningalífi okkar og samskiptum okkar við aðra sem t.d., hefur áhrif á raddblæ okkar þegar við syngjum.
Söngvar með löngum laglínum hafa sömu áhrif og öndunaræfingar í jóga. Með öðrum orðum, í gegnum söng getum við æft vissa stjórn á andlegu ástandi“.
Söngurinn gæti bætt heilsu þar sem þátttakendur neyddust til að taka upp rólegt og reglulegt öndunarmunstur, sem hefur góð áhrif á hjartsláttinn, segir Björn.
„Við vissum að kórsöngur samhæfir vöðvahreyfingar og taugaviðbrögð í stórum hluta líkamans. Núna vitum við líka að það sama virðist eiga við um hjartað að miklu leiti“.
Þetta eru góð tíðindi fyrir okkur Íslendinga þar sem kórastarf er á fáum stöðum í heiminum blómlegra og fróðlegt að vita hvort þetta hafi haft áhrif á hjartaheilsu landans.
Alla vega er ljóst að víða á landinu verða menn og konur glaðvær þegar brestur á með söng og vellíðan og gleði skín úr hverju andliti. Feyki.is var bent á þessa skemmtilegu færslu hjá Hjartalíf.is, sem á vonandi eftir að kæta marga Skagfirðinga.