Kosningasamvera hjá Sjálfstæðisfélagi V-Hún.
Sjálfstæðisfélag Vestur Húnavatnssýslu býður til kosningakaffis að Eyrarlandi 1, Hvammstanga (bílasölunni hans Jóa) föstudaginn 26. apríl frá klukkan 16:00-19:00 og á kjördag, laugardaginn 27. apríl frá klukkan 10:00-19:00.
„Oft hefur fólk komið saman og átt góðar stundir af minna tilefni en þessu. Hlökkum til að sjá sem flesta,“ segir í fréttatilkynningu frá stjórn Sjálfstæðisfélagsins.