Kostnaður vegna refa-og minkaveiða 6.6 milljónir
Á fundi landbúnaðarráðs Húnaþings vestra sl. fimmtudag var fjallað um veiðilendur, uppgjör vegna refa- og minkaveiða og eigendastefnu fyrir þjóðlendur. M.a. kom fram að kostnaður sveitarfélagsins vegna refa- og minkaveiða á tímabilinu 1. september 2015-31. Ágúst 2016 hefði numið rúmum 6,6 milljónum króna.
Unnin grendýr voru 95 áðurnefndu tímabili, 186 yrðlingar, 52 hlaupadýr og 39 minkar. Óskaði landbúnaðarráð óskar eftir að fá eina milljón króna í fjárveitingu á árinu 2017 til vetrarveiða á ref. Á fundinum kom ennfremur fram að á meðan ekki væri kominn úrskurður frá Forsætisráðuneytinu gegn Húnaþingi vestra um nýtingu þjóðlenda og leyfisveitinga til rjúpnaveiða í þjóðlendum, legði landbúnaðarráð til við sveitarstjórn, að fenginni umsögn lögfræðings, að haldið yrði óbreyttri stefnu haustið 2016, þ.e. að heimila veiðar gegn gjaldtöku og leyfisfyrirkomulag yrði með svipuðum hætti og síðustu ár. Loks var á fjallað um eigendastefnu fyrir þjóðlendur. Lögð var fram til kynningar umsögn lögfræðings um tillögu að eigendastefnu fyrir þjóðlendur og tók landbúnaðarráð undir álit Jóns Jónssonar lögfræðings. /KSE