Krækjur efstar í 5. deild

Krækjur í banastuði. Mynd: Sigurlaug Valgarðs.
Krækjur í banastuði. Mynd: Sigurlaug Valgarðs.

Blakfélagið Krækjur á Sauðárkróki skráðu sig á Íslandsmótið í blaki nú í ár og spila þar í 5. deild. Um helgina var fyrsta törnering haldin í Kórnum í Kópavogi og unnu Krækjurnar alla sína fimm leiki  2-0 og eru þar með efstar í deildinni.

Næst verður spilað 14. og 15. janúar og úrslitin ráðast svo 18. og 19. mars þegar deildarkeppni lýkur og að sögn Sigurlaugar Valgarðsdóttur er stefnan að sjálfsögðu sett á 4. deild að ári.

„Það er metnaður í Krækjum enda búnar að fá frábæran þjálfara sem er Cristina Ferreira fyrrverandi atvinnumaður í blaki. Krækjur eru svo þar að auki að keppa á öldungamótum í hverjum mánuði og næst er það Nettómót KA 16. og 17. nóvember nk.,“ segir Sigurlaug en til frekari útskýringa þá er þjálfarinn eiginkona Martins körfuboltaþjálfara.

Fleiri fréttir