Kreppuráð Láru

Hin landsþekkta fréttakona Lára Ómarsdóttir talar á fræðslufundum á sex þéttbýlisstöðum á Norðurlandi vestra dagana 25., 26. og 27. nóvember. Yfirskrift fræðslufundanna er Hagsýni og hamingja – Hvernig lifa má af litlu án þess að glata gleðinni.

Fundaröð þessi er á vegum Vinnumálastofnunar Norðurlandi vestra og Farskólans – símenntunarmiðstöðvar

Fundarstaðir eru sem hér segir:
Bíókaffi Siglufirði     þriðjudaginn 25. nóv. kl. 16:30 – 18:30
Höfðaborg Hofsósi    þriðjudaginn 25. nóv.kl. 20:00 – 22:00
Ólafshúsi Sauðárkróki   miðvikudaginn 26. nóv. kl. 16: 30 – 18:30
Bjarmanesi Skagaströnd   miðvikudaginn 26. nóv. kl. 20:00 – 22:00
Pottinum og pönnunni Blönduósi  fimmtdaginn 27. nóv. kl. 16:30 – 18:30
Kaffi Síróp Hvammstanga   fimmtudaginn 27. nóv. Kl. 20:00 – 22:00
 Fundirnir eru öllum opnir og aðgangur ókeypis.

Fleiri fréttir