Kristinn mættur til liðs við Heimi
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
02.05.2014
kl. 16.33
Karlakórinn Heimir og Kristinn Sigmundsson æfðu í gærkvöldi fyrir tónleika helgarinnar, sem verða í Miðgarði á laugardagskvöld og Hörpu á sunnudag. Æfingin gekk að sögn kórmanna vel, enda Kristinn enginn nýgræðingur í faginu, og þeir segja ljóst að áheyrendur eigi von á góðu um helgina.
Tónleikarnir í Miðgarði verða á laugardagskvöldið en tónleikarnir í Hörpu á sunnudaginn kl. 16:00.