Kristniboðsmót á Löngumýri
Um næstu helgi verður haldið árlegt Kristniboðsmót á Löngumýri í Skagafirði. Boðið er upp á fjölbreytta dagskrá alla helgina. Seinnipartinn á laugardag verður kristniboðssamvera í umsjón kristniboða sem staddir eru heima, en stunda kristniboð vítt og breytt um heiminn. Þar mun Bogi Benediktsson sýna myndir frá dvöl sinni í Kenía. Á sunnudagsmorguninn verður messa í Reykjakirkju.
Á mótinu er lögð áhersla á gott samfélag um Guðs orð og kynningu á kristniboði okkar Íslendinga. Á milli samverustundanna verður gott tækifæri til að spjalla saman og njóta náttúrunnar í Skagafirði.
Ræðumenn og fyrirlesarar verða þeir Haraldur Jóhannesson, Skúli Svavarsson og Jón Viðar Gunnlaugsson.
Allir eru velkomnir á mótið jafnt sem einstaka viðburði. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Kristniboðssambandsins.