Króksarinn Ólafur Einar Samúelsson í Fréttatímanum
Forvitnilegt viðtal er í Fréttatímanum við Ólaf Einar Samúelsson sem nú býr á Sauðárkróki. Ólafur er fæddur á Íslandi en var ættleiddur til Bandaríkjanna og fékk nafnið Tom Scarborough . Ævisaga Ólafs er í senn bæði forvitnileg og harmþrungin. Hann lýsir því hvernig hann varð fyrir aðkasti samlanda sinn í Bandaríkjunum, þar sem bæði svartir sem hvítir beittu hann og fósturbróður órétti en hann er af ætt Cherookee-indíána.
„Í dag lifir Ólafur rólegu lífi með kettinum sínum á Sauðárkrók. Hann lifir á bótum frá Bandaríkjunum, enda er hann öryrki. Bæði er hann illa haldinn af áfallastreitu eftir árin í hernum og svo lenti hann í slæmu bílslysi hér í febrúar árið 2009. Þá var honum haldið sofandi í öndunarvél í þrjá sólarhringa og var nær dauða en lífi. Taugar í hálsi Ólafs sködduðust og hann er meðal annars stöðugt skjálfhentur eftir bílslysið. Til þess að halda þeim einkennum niðri reykir hann kannabis og eins til að slá á martraðir og slæmar minningar úr herþjónustunni. Hann bíður nú dóms fyrir að hafa ræktað fimm plöntur af marijuana á Sauðárkróki“, segir í viðtalinu.