KS stofnar sölu og dreifingarfyrirtæki í Rússlandi
Á forsíðu Bændablaðsins, sem út kom í gær, er sagt frá því að KS hyggist á næstunni setja á fót fyrirtæki í St. Pétursborg í Rússlandi sem muni markaðssetja íslenskt lambakjöt fyrir Rússlandsmarkað.
Jafnframt kemur fram að um sé að ræða þjónustu við dýra veitingastaði, þar sem hátt verð fáist fyrir vöruna. Þegar fram í sæki megi búast við að fyrirtækið geti markaðssett ýmsa aðra matvöru og dreift henni í Rússlandi.
Í blaðinu er rætt við Ágúst Andrésson, forstöðumann Kjötafurðastöðvar Kaupfélags Skagfirðinga. Að hans sögn hefur KS farið fyrir markaðssetningu á íslensku lambakjöti í Rússlandi sl. þrjú ár. Að sögn Ágústs er þetta mjög kröfuharður markaður, sem inniber sum af dýrustu veitingahúsum Rússlands og þar með í heiminum.
Vandamálið til þessa hefur verið það að kaupendur eru fremur litlir og eru oft ekki með innkaupaþjónustu eða vöruhótel á bak við sig. Ágúst segir að hingað til hafi náðst umtalsverður árangur í kynningu en minni í sölu, vegna þessa.
Því var ráðist í stofnun umrædds fyrirtækis, í samvinnu við hjónin Sigurjón Bjarnason og Katerinu Geerasimova, en Katarina er frá St. Pétursborg og með mikla þekkingu og tengingar þar út, að sögn Ágústs. Hið nýja fyrirtæki mun heita Icecorpo.
Nánar má lesa um þetta í 8. tölublaði Bændablaðsins.