Kútarall og keppni um besta bjórinn
Bjórhátíðin verður haldin á Hólum á laugardaginn kemur og er þetta í þriðja sinn sem hátíðin er haldin. Hátíðin stendur frá kl 15:00 til 19:00. Helstu bjórframleiðendur landsins mæta á svæðið og kynna fjölbreytt úrval gæðabjóra. Kosið verður um besta bjórinn og keppt í kútaralli.
Bjórhátíðin er haldin að undirlagi Bjórseturs Íslands sem staðsett er á Hólum og er rekið af hópi áhugamanna um bætta bjórmenningu landsmanna. Fjöldi miða á hátíðina er takmarkaður og eru miðar seldir á vefsvæðinu midi.is. Nánari upplýsingar má finna á Fésbókarsíðu Bjórseturs Íslands eða netfanginu bjorsetur@holar.is.
Fréttatilkynning/KSE