Kvart milljón safnaðist á vígsluleikjunum

Í gær voru haldnir tveir vígsluleikir á nýja parkettinu í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki þar sem annarsvegar framtíðar meistaraflokkskonur Tindastóls öttu kappi við úrvalsdeildarlið Snæfells og hins vegar karlalið Tindastóls á móti Snæfelli. Allur ágóði miðasölunnar alls kr. 253.100,- rann í styrktarsjóð Magnúsar Jóhannessonar.

 

Úrslit leikjanna voru ekki hagstæð gestgjöfunum þar sem báðir leikirnir töpuðust. Það mátti reyndar búast við erfiðum róðri þar sem stúlkurnar leika í yngri flokkum og í karlaliðið vantaði tvo máttarstólpa, þá Friðrik Hreinsson og Maurice Miller sem kemur til landsins von bráðar. En úrslitin voru aukaatriði í gær, parkettið stendur undir væntingum, liðið slípaðist aðeins til og vonandi að einhverjir hafi fundið fjölina sína. Helgi Rafn Viggósson fyrirliði Tindastóls er bjartsýnn á komandi vetur og hlakkar til leikjanna í úrvalsdeildinni en fyrsti leikurinn er á móti Stjörnunni heima þann 14 október.

.

Fleiri fréttir