Kvenfélag Sauðárkróks færði Endurhæfingu HSN á Sauðárkróki veglega gjöf

Frá vinstri: Gíslína Kristín Helgadóttir, Sigríður Elfa Eyjólfsdóttir, Anna Jóna Guðmundsdóttir, Engilráð Margrét Sigurðardóttir, Margrét Jenný Guðjónsdóttir, Sigurdríf Jónatansdóttir, Sigrún Heiða Pétursdóttir, fulltrúar Kvenfélags Sauðárkróks, ásamt Helenu Magnúsdóttur sjúkraþjálfara, Herdísi Klausen hjúkrunarforstjóra, Þorsteini Þorsteinssyni yfirlækni og Fanney Ísfold Karlsdóttur sjúkraþjálfara. Mynd: KSE.

Á mánudaginn færði Kvenfélag Sauðárkróks Endurhæfingu HSN veglega gjöf. Um er að ræða svokallaðar trissur sem eru góð viðbót við tækjasal Endurhæfingarinnar. Herdís Klausen hjúkrunarforstjóri og Fanney Ísfold Karlsdóttir, forstöðumaður sjúkraþjálfunar, veittu gjöfinni viðtöku. Gat Herdís þess að allur tækjabúnaður í salnum væri gefinn af hinum ýmsu fyrirtækjum og félagasamtöku sem eru velviljuð stofnuninni.

Að sögn Fanneyjar voru trissurnar sem til voru fyrir orðnar barn síns tíma. Þær nýju eru á allan hátt handhægari en þær gömlu og mun hljóðlátari í notkun. Hún sagði þær bjóða upp á ýmsa möguleika og hægt væri að gera með þeim óteljandi æfingar. Sagði Fanney að gjöfin væri kærkomin viðbót í aðstöðu Endurhæfingarinnar, sem fjölmargir nýta sér á degi hverjum. /KSE

Fleiri fréttir