Kynbótasýning hrossa á Hvammstanga

Kynbótasýning hrossa hefst á Hvammstanga miðvikudaginn 23. maí nk. „Dómar verða miðvikudag og fimmtudag og yfirlitssýning á föstudegi. Þetta getur þó breyst ef skráningar verða ekki í samræmi við áætlanir,“ segir á heimasíðu hestamannafélagsins Þyts.

Síðasti skráningardagur er föstudagurinn 18. maí og fer skráning fram á netfanginu rhs@bondi.is og í síma 451 2602. Gjald er 18.500 kr. fyrir fullnaðardóm en 13.500 kr. fyrir dóm einungis á annað hvort byggingu eða hæfileika.

„Við skráningu þurfa að koma fram upplýsingar um hrossið, hvort hrossið á að fara í fullnaðardóm eða bara byggingu eða hæfileika, nafn og kennitala sýnanda, nafn og kennitala þess sem greiðir reikning og óskir um tíma ef einhverjar eru. Nafn og kennitala þess sem reikningur skal skrifast á verður að fylgja skráningu,“ segir í tilkynningu frá Búnaðarsambandi Húnaþings og Stranda á heimasíðu Þyts.

Í tilkynningunni er einnig komið með ábendingu um að kynna sér vel reglur um járningar, spattmyndir, DNA og fleira.

„Úr öllum stóðhestum sem koma til dóms svo og foreldrum þeirra þarf að vera búið að taka DNA-sýni til staðfestingar á ætterni. Auk þess þarf að vera búið að spattmynda alla stóðhesta 5 vetra og eldri og taka úr þeim blóðsýni,“ segir í tilkynningunni.

Nánari upplýsingar og tímasetningar á www.rhs.is þegar nær dregur.

Fleiri fréttir