Kynja þetta og jafnrétti hitt
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir framhaldsskólakennari, kynja og jafnréttisfræðari, ætlar að flytja fyrirlestur um jafnréttismál í Félagsheimilinu á Hvammstanga fimmtudaginn 8. nóvember nk. kl. 17-19.
Samkvæmt heimasíðu Húnaþings vestra verður þar farið í helstu birtingarmyndir jafnréttismála – frá sjónarhóli pilta og stúlka – karla og kvenna. Til dæmis áhrif auglýsinga, þvingandi kynhlutverk, útlitskröfur, sjálfsmynd og samskipti. Þá verður sérstaklega tekin fyrir umræða um klám og klámvæðingu: Hvað er í kláminu? Hver eru áhrifin á bæði kynin og samfélagið í heild.