Kynning á gæðingafimi - frestað vegna veðurs
feykir.is
Skagafjörður, Hestar
05.03.2015
kl. 23.17
Föstudagskvöldið 6. mars kl. 20:00 munu FT-norður og Reiðhöllin Svaðastaðir halda kynningu á keppnisgreininni gæðingafimi. Kynningin er ætluð knöpum jafnt sem áhorfendum.
Anton Páll Níelsson og Mette Mannseth munu mæta og leiða þátttakendur gegnum helstu þætti gæðingafimi, svo sem hvað er verið að dæma, hvað hestur þarf að sýna og fleira. Aðgangseyrir er 500 krónur.
Uppfært kl. 15:44
Gæðingafimi verður frestað vegna veðurs.