Kynningarfundur um markaðsverkefnið „Íslenski Hesturinn“

Íslandsstofa boðar til kynningarfundar í Skagafirði um markaðsverkefnið Íslenski Hesturinn sem hófst í lok árs 2015 og stendur í fjögur ár. Verkefninu er ætlað að efla ímynd íslenska hestsins á alþjóða vettvangi og auka gjaldeyristekjur greinarinnar í heild.

Verkefnið verður fjármagnað með 25 milljóna framlagi ríkissjóðs gegn sambærilegu mótframlagi greinarinnar.

Íslandsstofa stýrir verkefninu og býður nú hagsmunaaðilum og áhugafólki um framgang íslenska hestsins til fundar í Skagafirði til að kynna núverandi stöðu, framtíðarsýn verkefnisins og vörumerkið okkar „Íslenski Hesturinn“.

Fundur verður haldinn í Reiðhöllinni að Svaðastöðum kl. 20:00 í dag, miðvikudaginn 9. mars.

Frekari upplýsingar um verkefnið er að finna á vef Íslandsstofu

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir