Landsbankamót og Króksmót FISK Seafood

Undirbúningur er fyrir nokkru hafinn hjá knattspyrnudeild Tindastóls vegna Landsbankamóts og Króksmóts FISK Seafood sem haldin hafa verið á Sauðárkróki í áraraðir.  Búið er að ráða tvo mótsstjóra sem munu halda utan um bæði mótin en það eru þeir félagarnir Guðjón Örn Jóhannsson og Ingvi Hrannar Ómarsson. „Báðir eru þeir reynsluboltar í þessu og það er mikill fengur að hafa slíka menn innanborðs,“ segir í fréttatilkynningu frá Tindastóli.  

Í tilkynningunni kemur fram að þegar nær dregur mun verða kallað á fleiri aðila til að koma að undirbúningi og framkvæmd mótanna en þar á félagið frábært fólk sem lagt hefur þessum verkefnum lið um áraraðir.

Landsbankamótið sem er fyrir stelpur í 5. 6. og 7.flokki verður haldið dagana 28. og 29. júní en Króksmót FISK Seafood sem er fyrir stráka í 5. 6. og 7. flokki verður dagana 9. og 10. ágúst.  Bæði þessi mót fara fram á Sauðárkróksvelli.

„Nú eftir breytingar á Árskóla hefur öll  gistiaðstaða batnað  til muna enda telja skipuleggjendur að þetta sé ein allra besta aðstaða sem boðið er uppá á sambærilegum mótum.  Nálægðin við allt skapar okkur töluverða sérstöðu; gisting keppenda og gesta, vellirnir og mötuneytið, allt á nánast sama stað,“ segir í tilkynningunni.

Leikir hefjast á laugardagsmorgni og gert er ráð fyrir að báðum mótunum ljúki um miðjan dag á sunnudegi. Á báðum mótunum verður boðið upp á metnaðarfulla kvöldvöku en þar munu félagarnir Auddi Blö. og Jón Jónsson skemmta.

„Það eru því spennandi mót framundan á Króknum í sumar og ástæða að fara að láta sér hlakka til,“ segir loks í tilkynningu.

 

Fleiri fréttir