Landsmót hestamanna formlega sett í gærkvöldi
Það hýrnaði heldur betur yfir Landsmótsgestum á Vindheimamelum í Skagafirði í gær þegar sólin lét loks sjá sig eftir frekar kalda daga þar á undan og settist hún ekki meðan dagskrá leið. Í gærkvöldi var mótið formlega sett að viðstöddu fjölmenni er naut veðurblíðunnar í áhorfendabrekkunni.
Setningarathöfnin hófst með glæsilegri hópreið hestamanna þar sem hátt í 300 manns tóku þátt og riðu settlega inn á völlinn hver í sínum félagsbúningi. Bjarni Jónsson forseti sveitarstjórnar Skagafjarðar sté fyrstur í pontu þeirra er fluttu ávörp en meðal þeirra voru séra Sigríður Gunnarsdóttir sóknarprestur á Sauðárkróki, Svandís Svavarsdóttir menntamálaráðherra, Gunnar Sturluson f.h. stjórnar FEIF og Haraldur Þórarinsson formaður LH og Landsmóts sem setti mótið formlega.
Karlakórinn Heimir söng falleg lög og meðal annars Skín við sólu Skagafjörður sem átti vel við í kvöldsólinni og Eyþór Árnason skáld frá Uppsölum flutti drápu um skagfirst mannlíf og náttúru og þakkaði m.a. fyrir það að Drangey hefði verið kýr er hún dagaði uppi í Skagafirði en ekki meri því þá væri hún líklega stödd núna í Húnaflóanum. Strax eftir mótssetningu var fram haldið skeiðkeppni frá deginum áður þar sem skeiðgarpar tóku tvo síðari sprettina í keppninni.
.