Laufey Kristín Skúladóttir ráðin í starf verkefnastjóra

Laufey Kristín  Skúladóttir hefur verið ráðin í starf verkefnastjóra í atvinnu-, menningar- og kynningarmálum hjá sveitarfélaginu. Starfið var auglýst laust til umsóknar þann 21. júlí 2014 og rann umsóknarfrestur út 6. ágúst sl. Alls voru níu umsækjendur en þar af drógu tveir umsókn sína til baka.

Samkvæmt heimasíðu Svf. Skagafjarðar lauk Laufey Kristín Skúladóttir Cand. Merc. (MSc.) í stjórnun nýsköpunar og viðskiptaþróun árið 2013. Það er masterspróf af línunni Management of Innovation and Buisness Development frá Copenhagen Business School í Danmörku. Námið var afar fjölbreytt m.a. með áfanga í fjármálum, verkefnastjórnun og vöruþróun, stefnumótun og markaðsþróun. Í valáföngunum tók hún áfanga með áherslu á skapandi greinar og félagslega ábyrgð fyrirtækja.  Lokaritgerð hennar fjallaði um íslenska kvenfrumkvöðla sem stofnuðu fyrirtæki eftir efnahagshrunið 2008.  Einnig lauk hún BA prófi árið 2009 í hagfræði með heimspeki sem aukafag frá HÍ. Lokaritgerðin fjallaði um félagslega ábyrgð fyrirtækja (CSR).

Laufey var ráðin tímabundið hjá Sveitarfélaginu Skagafirði í sumar sem verkefnastjóri.  Hún hefur verið framkvæmdastjóri tónlistarhátíðarinnar Gærunnar síðastliðin 2 ár og var tímabundin ráðin sem atvinnuráðgjafi hjá SSNV árið 2013. Einnig sat hún í undirbúningsnefnd fyrir Unglingalandsmót 2014 á Sauðárkróki.

Hún hefur mjög gott vald á íslensku, ensku og dönsku bæði í töluðu og rituðu máli og býr einnig yfir grunn þekkingu í þýsku.

Verkefnastjóri starfar á stjórnsýslu- og fjármálasviði. Verkefnastjóri vinnur m.a. að skilgreindum verkefnum fyrir atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd með það að markmiði að þróa áfram ákveðin verkefni sem eru vel fallin til þess að stuðla að uppbyggingu, nýsköpun og framþróun í Skagafirði. Auk þess tekur verkefnastjóri þátt í öðrum verkefnum undir stjórn sviðsstjóra og næsta yfirmanns.

Fleiri fréttir