Laufskálarétt um helgina

Laufskálaréttarhelgin nálgast með allri sinni dýrð. Fjörið hefst í Svaðastaðahöllinni á föstudagskvöldið, 27. sept.,  með gæðingum, gríni og söng. Stóðið er síðan rekið til réttar undir hádegi á laugardag og réttarstörf hefjast kl. 13:00 og þá þurfa allir að vera mættir til þess að upplifa einstaka stemningu.

Á heimasíðu Svaðastaðahallarinnar segir að heimreksturinn úr réttinni sé svo kapítuli út af fyrir sig, kjötsúpa á öðrum hvorum bæ og gleðin við völd. Síðast en ekki síst er svo stórdansleikur í Reiðhöllinni Svaðastöðum á laugardagskvöldið.

Maður er manns gaman.

Fleiri fréttir