Laufskálaréttir verða þann 29. september
Þrátt fyrir ótíð og ýmsar hrakfarir hjá sauðfjárbændum í Skagafirði undanfarið halda hrossabændur í fyrrum Hóla- og Viðvíkurhreppi áætlun hvað Laufskálaréttir varða. Heyrst hafði að til stæði að flýta smölun í Kolbeinsdal vegna hagleysu en því neitar Halldór Steingrímsson fjallskilastjóri í viðtali í nýjasta Feyki.
Halldór segir að sú saga sé ekki frá fjallskilanefndinni komin. Sauðfé hraktist eitthvað í dalnum í hretinu um daginn og hafa bændur staðið í stórræðum við að bjarga því en hrossin stóðu veðrið af sér og hafi það gott.
Halldór segir að búist sé við fjölda gesta sem ætli sér að taka þátt í rekstri stóðsins til réttar og eru allir velkomnir að gleðjast með bændum á þessum degi. Það eina sem fólk þarf að gera er að vera mætt með reiðhestinn sinn við Laufskálarétt eða við hesthúsið Ástungu klukkan 10 á laugardagsmorguninn en þaðan er riðið upp í Kolbeinsdal. Réttarstörf hefjast svo klukkan eitt.
Rætt er við Halldór í nýjasta Feyki sem og Kristínu Guðmundsdóttur fjalladrottningu Víðdælinga í tilefni af réttarhelgi þeirra 5.-6. október.