Laus hlutastörf í Dagdvöl aldraðra

Á vef Skagafjarðar eru auglýst tvö laus hlutastörf á dagvinnutíma í Dagdvöl aldraðra.  Í störfunum felst m.a. aðstoð við handmennt og önnur almenn umönnun.

Leitað er að fólki með:

góða, almenna menntun
virðingu í mannlegum samskiptum
frumkvæði og ábyrgð
hæfni til að tileinka sér nýjungar

Störfin henta jafnt konum sem körlum. Launakjör skv. kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur rennur út 31.júlí 2013.
Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður Elísabet Pálmadóttir í síma 453-5909 eða gsm: 893-5398

Sækja skal um með rafrænni umsókn sem er í Íbúagátt sveitarfélagins, eða á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar.

Dagdvöl aldraðra er stuðningsúrræði við þá sem að staðaldri þurfa eftirlit og aðstoð við athafnir daglegs lífs til að geta búið áfram heima eins lengi og kostur er.
Dagdvölin er til húsa í Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki en rekin af Sveitarfélaginu Skagafirði. Opið er alla virka daga frá klukkan 9 - 15. Þar er boðið upp að ýmiskonar afþreyingu s.s. sund og æfingar í Endurhæfingarstöð HS, föndur og spil.

Fleiri fréttir