Laus störf skólaliða við Grunnskólann á Hofsósi

Við Grunnskólann austan Vatna - Hofsósi eru lausar til umsóknar störrf tveggja skólaliða, 1,5 stöðugildi alls. Starf skólaliða er fjölbreytt og felur í sér gæslu og aðstoð við nemendur í starfi og leik á vegum skólans, störf í síðdegisgæslu, ræstingar o.fl.

Leitað er að aðila sem:

  • Hefur áhuga á og reynslu af að starfa með börnum og á auðvelt með samskipti við börn.
  • Hefur til að bera góða samskiptahæfni.
  • Getur unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði.
  • Leitað er eftir bæði karlmanni og kvenmanni í störfin.

Frekari upplýsingar veitir skólastjóri, Jón Hilmarsson 898-6364 / jon@gsh.is og er umsóknarfrestur til og með 8. júlí. Umsóknir sendist á Grunnskólann Hofsósi, skólagötu, 565 Hofsósi eða á jon@gsh.is

Fleiri fréttir