Laus störf við Árskóla á Sauðárkróki

Laus störf við Árskóla á Sauðárkróki frá 1. ágúst 2013.

Skólaritari

Auk almennra ritarastarfa og símsvörunar sinnir skólaritari fjölbreyttum verkefnum varðandi innkaup, skráningu barna í ýmsa þjónustu, reikningagerð, eftirlit með greiðslum og ýmsa aðra bókhaldsvinnu.

Launakjör eru skv. Kjarasamningi Starfsmannafélags Sveitarfélagsins Skagafjarðar.

Umsjónarkennari á unglingastigi. Kennslugreinar eru íslenska og danska. Heil staða.

Umsjónarkennari á unglingastigi, 19 tímar. Kennslugreinar eru danska, stærðfræði og íslenska.

Umsækjendur þurfa að hafa kennaramenntun, góða skipulagshæfileika og mikla hæfni í mannlegum samskiptum. Reynsla af umsjón með bekk æskileg. Reynsla af teymisvinnu og áhugi á þróunarstarfi eru einnig mikilvægir eiginleikar þar sem skólastarfið byggir á mikilli samvinnu milli kennara.

Launakjör skv. kjarasamningi KÍ.

Störfin eru laus frá 1. ágúst 2013. Umsóknarfrestur er til 12. júní 2013 og sótt er um á vefnum skagafjordur.is. Upplýsingar um störfin gefur Óskar G. Björnsson skólastjóri Árskóla s: 455-1100. Skagafjörður.is segir frá þessu.

Fleiri fréttir