Laus störf við Leikskólann Tröllaborg

Sveitarfélagið Skagafjörður auglýsir eftir starfsmönnum í ræstingar og eldhús við Leikskólann Tröllaborg á Hólum í Hjaltadal. Umsóknarfrestur um störfin er til 21. ágúst.

Ekki kemur fram um hve hátt starfshlutfall er að ræða við ræstingar en starfið er í eldhúsi er 50%. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Öldunnar og Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Nánari upplýsingar um störfin veitir Anna Á. Stefánsdóttir leikskólastjóri í síma 862-5606. Hægt er að sækja um með rafrænni umsókn á Íbúagátt eða vefsíðu sveitarfélagsins.

Fleiri fréttir