Leikfélag Akureyrar með margt í deiglunni
Leikárið 2011-2012 er nú að fara á fulla ferð hjá Leikfélagi Akureyrar og er að sjá að fjölbreyttur og spennandi vetur sé framundan. Leikfélagið mun frumsýna þrjár eigin uppfærðslur og bjóða uppá fjölda ólíkra og vandaðra gestasýninga í vetur. Gestasýningarnar eru bæði sýningar frá hinum atvinnuleikhúsunum ásamt spennandi sýningum leikhópa ungra atvinnuleikara.
Hafnar eru æfingar á Svörtu kómedíunni eftir Peter Shaffer sem verður frumsýnd 14. október í leikstjórn Maríu Sigurðardóttur. Þeir félagar í Hundi í óskilum vinna nú með Benedikt Erlingssyni við að semja verkið Íslenski fjárhundurinn – saga þjóðar, sem verður frumsýnt í lok október. Leikstjóri er Benedikt Erlingsson. Eftir áramótin mun LA frumsýna nýjan íslenskan söngleik eftir þá Karl Ágúst Úlfsson og Sigurð Sigurjónsson, með tónlist eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson. Það er Sigurður Sigurjónsson sem leikstýrir og Björn Jörundur leikur aðalhlutverkið. Gulleyjan er samstarfsverkefni LA og Borgarleikhússins. Meðal gestasýninga vetrarins er Nýdönsk í Nánd, Fjalla Eyvindur, Afinn, Súldarsker og fleiri.
Nú þegar höfum við sýnt fyrstu gestasýningu okkar, en það er Sögustund, sem kemur frá Þjóðleikhúsinu og var öllum börnum í elstu deildum leikskóla og fyrsta bekk grunnskóla á svæðinu boðið á sýningarnar.