Leikfélag Sauðárkróks af stað

Á morgun þriðjudagskvöld, 13. mars, kl. 20.00 verður haldinn startfundur Sæluvikuverkefnis 2012 hjá Leikfélagi Sauðárkróks. Fundurinn verður haldinn í Leikborg og eru leikarar, tæknimenn, saumafólk, propsarar og allir aðrir velkomnir á fundinn.

Á fundinum verður kynntur leikstjóri verkefnisins, Ingrid Jónsdóttir og upplýst um Sæluvikuleikritið 2012.

Vænst er sem flestra en þeir sem ekki komast en vilja vera með geta haft samband við formanninn fyrir fundinn í síma 862 5771.

Aldurstakmark er 16 ár.

Fleiri fréttir