Leikfélag Sauðárkróks af stað með frumsamið leikrit

Nú blæs Leikfélag Sauðárkróks í herlúðra og kallar til fyrsta fundar í kvöld vegna Sæluvikuleikrits þetta árið og boðar alla áhugasama að mæta. Vegna Covid varð LS að fresta uppsetningu fyrir ári en nú á að reyna á ný að heimsfrumsýna leikritið Á frívaktinni eftir Pétur Guðjónsson sem jafnframt leikstýrir. Í leikritinu eru þekkt sjómannalög og segir á skemmtilegan hátt frá lífinu í litlu sjávarplássi úti á landi.

„Við óskum eftir fólki til að leika og starfa við sýninguna. Ýmis verkefni eru í boði bæði stór og smá, t.d. að sauma og finna búninga, finna leikmuni, vinna við leikmynd, tæknivinna við ljós og hljóð, miðasala og margt fleira. Á fundinum verður leikritið kynnt, farið yfir æfinga- og sýningartímabilið og kynntar spennandi áætlanir í kringum verkefnið. Miðað er við 16 ára aldurtaksmark.

Nauðsynlegt er að þeir sem ætla að vera með, hvort heldur sem fólk vill leika eða starfa við sýninguna á einhvern hátt mæti á fyrsta fund eða tilkynni þátttöku til formanns LS, Sigurlaugar Dóru, í s. 862-5771 FYRIR FUND svo við vitum í upphafi hvort við getum mannað allar stöður.
Allir velkomnir á fund, hlökkum til að sjá ykkur!“ segir í tilkynningu frá Stjórn Leikfélags Sauðárkróks.
Fundurinn verður haldinn í kvöld, 4. mars, í húsnæði LS að Borgarflöt 19 D (sömu megin og Myndun og Áki) og hefst klukkan 20:00.

Fleiri fréttir