Leikir Tindastóls í körfu um helgina
Bikarkeppni yngri flokka Tindastóls hefst um helgina þar sem en 10. flokkur stúlkna keppir við Njarðvíkinga í Ljónagryfjunni í Njarðvík, 9. flokkur drengja tekur á móti Breiðabliki og 10. flokkurinn á móti Njarðvík. Drengjaflokkur mun spila heimaleik á laugardag.
Samkvæmt heimasíðu Tindastóls mæta stelpurnar í 10. flokki Njarðvíkingum í Reykjanesbæ kl. 13.30 á laugardaginn. Njarðvíkurstúlkur eru með sterkt lið í A-riðli og því hörkubarátta framundan hjá Tindastólsstúlkum.
9. flokkur drengja keppir við Breiðablik á heimavelli á laugardag. Blikarnir sigruðu C-riðilinn á dögunum á meðan Tindastólsdrengir vörðu sæti sitt í B-riðli og verður því eflaust um hörkuleik að ræða. Leikurinn hefst kl. 13.00.
10. flokkur drengja tekur á móti Njarðvíkingum í Síkinu skömmu síðar, kl. 14.30. Njarðvíkingar unnu C-riðilinn í síðasta móti á meðan Tindastólsstrákarnir sigruðu alla leiki í B-riðli.
Drengjaflokksstrákarnir spila við KR-b í Íslandsmótinu í Síkinu á laugardaginn KR hefur þegar leikið sjö leiki í deildinni, unnið tvo leiki gegn ÍA og Val en tapað fimm leikjum. Tindastólsdrengir eru hins vegar ósigraðir í riðlinum eftir fjóra leiki og sitja í 4. sæti riðilsins með átta stig. Leikurinn hefst kl. 16.00.