Leikmaður 18. umferðar - Atli Arnarson

Atli Arnarson, leikmaður meistaraflokks karla hjá Tindastól hefur staðið sig mjög vel í sumar og hefur verið valinn besti leikmaður 18. umferðar á fótbolti.net. Hér má lesa viðtalið sem fótbolti.net tók við Atla.

 Bestur í 1. deild: Erum hættir að slást

 
Atli skoraði tvö mörk og lagði upp eitt í 3-1 sigri Tindastóls á KF á laugardag.

;,Það voru allir að spila vel og fyrir utan kannski fyrstu 20 mínúturnar þá fannst mér við stjórna leiknum að mestu leyti. Við sköpuðum okkur fullt af færum og hefðum átt skora fleiri en heilt yfir fannst mér þetta vel spilaður leikur."

Atli segir að það hafi verið extra gaman að hafa betur í Norðurlandsslag gegn KF.

,,Já klárlega, það er alltaf gaman að vinna þessa nágrannaslagi, þetta eru alltaf hörkuleikir og mikil læti. Það var líka ennþá sætara að við höfum farið langleiðina með að tryggja sæti okkar í deildinni með sigrinum."

Tindastóll er eftir leikinn með 25 stig í 7. sætinu í 1. deildinni og Atli er nokkuð ánægður með tímabilið.

,,Svona að mestu leyti. Auðvitað vilja menn alltaf gera betur, en við getum ennþá náð okkar markmiðum og bætt besta árangur liðsins frá upphafi. Ég hef fulla trú á að við náum því og að strákarnir klári þessa leiki sem eftir eru með stæl."

Atli er fæddur árið 1993 en þrátt fyrir ungan aldur hefur hann verið fastamaður í liði Tindastóls undanfarin ár. Síðastliðinn vetur æfði Atli með Breiðabliki en hann segist ekki hafa heyrt af áhuga úr Pepsi-deildinni.

,,Ég hef ekki heyrt frá neinum á þessu tímabili, en vonandi að maður hafi náð að vekja einhverja athygli í sumar. Maður stefnir auðvitað á að spila í efstu deild og vonandi nær maður því fljótlega."

Hjá Tindastóli spilar Atli með eldri bróður sínum Árna á miðjunni og þeir láta stundum hvorn annan heyra það.

,,Það er mjög fínt, við þekkjum leik hvors annars vel enda búnir að spila saman síðan við vorum pollar og það hjálpar auðvitað. En ef að annar okkar er með allt niðrum sig þá fær hann alveg að heyra það, svo er það yfirleitt afgreitt í kvöldmatnum heima, en við erum allavega hættir að slást," sagði Atli léttur í bragði að lokum.

Fleiri fréttir