Leikskólaliðar og stuðningsfulltrúar á skólabekk

Hjördís Inga og Lydía glaðbeittar á skólabekk í Farskólanum. Mynd: farskolinn.is.
Hjördís Inga og Lydía glaðbeittar á skólabekk í Farskólanum. Mynd: farskolinn.is.

Á heimasíðu Farskólans er sagt frá því að um þessar mundir er að ljúka raunfærnimati á móti námskrá í leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú. Kennsla stendur yfir í þessari námskrá og er námið skipulagt í samstarfi við SÍMEY - símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar og Fræðslumiðstöð Vestfjarða.

Fyrsta áfanga námsins, uppeldisfræði, er lokið og næsti áfangi tekinn við sem er siðfræði. Námið er skipulagt sem svokallað ,,vendinám" eða ,,spegluð kennsla", sem þýðir meðal annars að námsmenn hlusta á fyrirlestra um efnið heima, áður en þeir koma í tímana og síðan eru kennslustundirnar sjálfar nýttar í verkefnavinnu.

Nemendahópurinn kemur saman í Námsverum í Eyjafirði, Skagafirði, Blönduósi, Hólmavík og Ísafirði til að vinna sín verkefni. „Ekki er annað að sjá en að námið gangi vel,“ segir á heimasíðu Farskólans. Fleiri myndir frá námi leikskólaliða og stuðningsfulltrúa er að finna á heimasíðu Farskólans.

 

Fleiri fréttir