Leit hafin að nýjum leikmanni

Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur rift samningi sínum við bandaríska leikmanninn Eryk Watson. 

Fram kemur á heimsíðu Tindastóls að Eryk hafi komið til landsins í síðustu viku og leikið þrjá æfingarleiki með Tindastóli um síðustu helgi. Þá þótti hann ekki standa undir væntingum og samningi hans því sagt upp.

Leit er þegar hafin að nýjum leikmanni en Eryk mun halda til Tékklands á næstu dögum og mun spila með þarlensku liði.

Fleiri fréttir