Leit stendur enn yfir
Leitað hefur verið í alla nótt að manninum sem féll í Hjaltadalsá í gær, án árangurs. Að sögn Haraldar Ingólfssonar formanns Skagfirðingasveitar hafa 60-70 björgunarsveitarmenn verið að í alla nótt. Gengið er með bökkum árinnar og bátar lóna úti fyrir ósi Kolku, árinnar sem Hjaltadalsáin rennur í, þá hafa hundar einnig verið notaðir við leitina sem og þyrla Landhelgisgæslunnar.
Haraldur segir að áin sé vatnsmikil og erfið yfirferðar en leit verður haldið áfram fram eftir degi. Fjöldi fólks í björgunarsveitum úr Húnavatnssýslum og Eyjafirði, Siglufirði og Grenivík hefur tekið þátt í leitinni.