Leita að líki í sjónum við Hofsós

Lögreglan og björgunarsveit leita nú í sjónum við Hofsós að rekaldi sem talið er hugsanlegt að sé mannslík, en frá þessu var greint á mbl.is um miðjan dag í dag. Sjófarandi kom auga á eitthvað á reki í sjónum sem hann taldi geta verið lík en treysti sér ekki til að fara nær þar sem börn voru um borð í bátnum.

Leitað er á þremur bátum en ekkert hefur enn fundist að sögn Ingimundar Ingvarssonar í svæðisstjórn björgunarsveitarinnar. Töluverður straumur er og óvíst hvort nokkuð finnist. Þegar blaðamaður hafði samband við Ingimund nú um áttaleytið átti að fara að hætta leit í kvöld og ekki var búið að taka ákvörðun um hvort leitinni yrði haldið áfram á morgun. Leitað hefur verið í og við Hofsós í dag, en án árangurs.

Á Mbl.is er skýrt tekið fram að ekki er vitað með vissu hvort um mannslík hafi verið að ræða en lögregla og björgunarsveitarmenn hyggjast leita af sér allan grun.

Fleiri fréttir