Leita upplýsinga um söguleg flóð í Héraðsvötnum
Veðurstofa Íslands vinnur að hættumati á helstu vatnsföllum landsins. Hluti af því verkefni er að safna öllum tiltækum upplýsingum um söguleg flóð við eftirfarandi vatnsföll og þverár þeirra:
- Hvítá í Borgarfirði
- Héraðsvötn í Skagafirði
- Eyjafjarðará
- Skjálfandafljót
- Lagarfljót.
Eins og upptalningin sýnir, beinist þessi áfangi að því að skoða flóð sem orsakast af veðurfarslegum þáttum. Það er eðlismunur á slíkum flóðum og jökulhlaupum sem orsakast af eldvirkni. Það mikilvæga verkefni verður tekið fyrir með öðrum hætti.
Veðurstofan telur afar mikilvægt að yfirstandandi gagnasöfnun byggist eins og kostur er á upplýsingum sem aflað var á vettvangi og af því fólki sem kunnugt er staðháttum. Er því leitað eftir öllum tiltækum upplýsingum varðandi fyrri flóð á ofangreindum vatnasviðum þ.m.t. staðsetningu þeirra, umfang og það tjón sem þau ollu. Varðandi tjón er einnig átt við truflun á rekstri innviða svo sem veitukerfa, samskiptakerfa og samgöngukerfa.
Allar upplýsingar eru vel þegnar, sama á hvaða formi sem þær eru, svo sem ljósmyndir, myndskeið, kort, samtímafrásagnir, gagnagrunnsfærslur, dagbókarfærslur o.s.frv.
Þeir sem hafa slíkar upplýsingar eru hvattir til þess að senda Veðurstofunni þær eða benda á hvar þær er að finna. Netfangið er vatnsflodasaga@vedur.is. Einnig má hringja í Veðurstofuna og biðja um Davíð Egilson, sem veitir nánari upplýsingar, samkvæmt tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.