Óskað eftir afstöðu um framkvæmd umhverfismats

Ráðhús Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Mynd/BÞ
Ráðhús Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Mynd/BÞ

Skipulagsstofnun, sem hefur til meðferðar tillögu að matsáætlun vegna Sprengisandslínu, hefur óskað eftir afstöðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar til þess hvort meta beri sameiginlega umhverfisáhrif svokallaðrar Sprengisandslínu, Hólasandslínu, línu milli Kröflu og Hólasands (áður Kröflulínur 3 og 4), Kröflulínu 3 og Blöndulínu 3.

„Með vísan til 10.gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, er óskað eftir afstöðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar til þess hvort framangreind lagaskilyrði 2.mgr. 5.gr. matslaganna séu uppfyllt þannig að stofnunin geti tekið ákvörðun um hvort ráðast þurfi í sameiginlegt umhverfismat Sprengisandslínu og framangreindra framkvæmda eða ekki,“ segir um beiðni Skipulagsstofnunar í fundargerð byggðarráðs frá 11. febrúar sl. 

Í fundargerð segir að Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar telji rétt að meta eigi hverja framkvæmd fyrir sig.

Þá óskaði Hildur Magnúsdóttir, áheyrnarfulltrúi VG og óháðra, bókað:

„Þar sem fleiri en ein matskyld framkvæmd eru fyrirhugaðar á sama svæði með umtalsverðum heildaráhrifum sem eru meiri en þegar horft er á hverja framkvæmd fyrir sig, er augljóst að mati VG og óháðra í Skagafirði að ráðast verður í sameiginlegt umhverfismat á Sprengisandslínu og öðrum framkvæmdum við fyrirhugaðar háspennulínur sem kynntar hafa verið í kerfisáætlun Landsnets. Að öðrum kosti fæst ekki rétt mat á heildaráhrif þessara framkvæmda.“

Málið var tekið fyrir á ný á sveitarstjórnarfundi Svf. Skagafjarðar þann 17. febrúar. Þá tók  Bjarni Jónsson til máls og áréttaði bókun Hildar Þóru.

Afgreiðsla 731. fundar byggðaráðs var síðan staðfest á fundinum með átta atkvæðum. Bjarni Jónsson óskaði bókað að hann tæki ekki þátt í afgreiðslu málsins.

Fleiri fréttir