Lést í umferðarslysi

Stúlkan sem lést í umferðarslysinu á Vesturlandsvegi við Fornahvamm í Norðurárdal síðastliðinn sunnudag hét Anna Jóna Sigurbjörnsdóttir, búsett á Sauðárkróki. Anna Jóna var sextán ára gömul, fædd 18. janúar 1997, dóttir þeirra Sigurbjörns Björnssonar og Báru Jónsdóttur. Hún var nemandi við Fjölbrautaskóla Norðurland vestra.

Í morgun stóðu vinir Önnu Jónu fyrir fallegri athöfn við Fjölbrautaskólann, þar sem myndaður var ljósastígur með friðarkertum frá bóknámshúsi niður göngustíg að verknámshúsi. Tóku nemendur Árskóla og Fjölbrautaskólans, ásamt starfsfólki og fleiri bæjarbúum þátt í athöfninni.

Líðan átján ára karlmanns sem slasaðist alvarlega í sama slysi er óbreytt. Hann var enn þungt haldinn í gærkvöldi og haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans, eins og greint var frá á Mbl.is snemma í morgun.

Fleiri fréttir