Lét drauminn verða að veruleika

Skrautmen er nýstofnað skagfirskt fyrirtæki sem framleiðir skartgripi og skrautmuni fyrir heimilið. Munirnir hafa að mestu verið til sölu á netinu og í nokkrum verslunum hérlendis en einnig vestanhafs.

„Það má í raun segja að markaðurinn hérna heima og úti sé svart og hvítt, en mér finnst pínu fyndið að úti eru vörurnar mínar markaðssettar á þann veg að þær séu „by real Icelander“, eða að það hafi „ekta Íslendingur“ útbúið þær, en það slær í gegn þarna á Íslendingaslóðum,“ segir Lilja Gunnlaugsdóttir eigandi Skrautmens en hún er í opnuviðtali Feykis þessa vikuna.

Í viðtalinu segir hún frá því hvernig hún söðlaði aldeilis um fyrir fáeinum mánuðum, sagði starfi sínu lausu sem sérfræðingur í gagnagreiningu, stofnaði handverksfyrirtæki og gaf sköpunarkraftinum lausan tauminn.

 

Fleiri fréttir