Lettnesk hestatónlist á Lýtingsstöðum

Í september eru væntanleg í Skagafjörðinn tónlistarhjónin Aina Tobe og Gvido Tobis frá Lettlandi. Fyrirhugað er að þau haldi tónleika á ferðaþjónustubænum Lýtingsstöðum, en þau spila lettneska þjóðlagatónlist frá miðöldum.

Að sögn Dagniju Medne, sem búsett er á Árnesi í fyrrum Lýtingsstaðahreppi, kviknaði sú hugmynd þegar hjónin Aina og Gvido boðuðu komu sína til landsins, að þau hefðu með sér hljóðfæri og jafnvel 12. aldar búninga og héldu tónleika, en í Lettlandi leika þau með fimm manna hljómsveit.

Ainu hefur lengi dreymt um að koma til Íslands.Þau hjónin hafa mikinn áhuga um menningu og síðum Norðurlandanna og finnst margt líkt með menningu Norðurlandanna og Eystrasaltslandanna.

„Ég er búin að búa nokkur ár á Íslandi og það er gamall draumur minn að heyra lettneska tónlist flutta hér í Skagafirði. Mér datt því í hug að nota tækifærið þegar þau koma í heimsókn,“ segir Dagnija aðspurð um tónleikana.

Dagnija segir að á tónleikana verði valin lög sem fjalla um hesta eða samband hesta og manna til flutnings á tónleikunum, þar sem hestamennska er vinsæl í Skagafirði og rekin er hestaleiga á Lýtingsstöðum þar sem tónleikarnir verða haldnir.

Fleiri fréttir