Lewis og Martin í úrvalslið seinni umferðar Domino´s deildarinnar

Umferðarverðlaun fyrir seinni hluta Domino's deildar karla í körfu á þessu tímabili voru afhent í íþróttamiðstöðinni í Laugardal í gær. Israel Martin þjálfari Tindastóls var valinn besti þjálfarinn og Darrel Lewis leikmaður Tindastóls var valinn í lið seinni umferðar en hann var einnig í liði fyrri umferðar.

leikmenn og þjálfarar skipa úrvalsliðið Domino's deildar karla í seinni hluta keppnistímabilsins 2014-2015. Mynd/Stefán Jónsson Leikmenn og þjálfarar skipa úrvalsliðið Domino's deildar karla í seinni hluta keppnistímabilsins 2014-2015. Mynd/Stefán Jónsson

Eftirtaldir leikmenn og þjálfarar skipa úrvalsliðið Domino's deildar karla í seinni hluta keppnistímabilsins 2014-2015:

Pavel Ermolinskij · KR

Emil Barja · Haukar

Stefan Aaron Bonneau · Njarðvík

Darrel Keith Lewis · Tindastól

Grétar Ingi Erlendsson · Þór Þorlákshöfn

 

Dugnaðarforkurinn: Kristinn Marinósson · Haukar

Besti þjálfarinn: Israel Martin · Tindastóll

Besti leikmaðurinn (MVP): Stefan Aaron Bonneau · Njarðvík

Fleiri fréttir