Leyfi fengið fyrir þjónustumiðstöð á Ósum á Vatnsnesi
Sveitarstjórn Húnaþing vestra samþykkti að veita leyfi fyrir þjónustumiðstöð í landi Ósa á Vatnsnesi á síðasta fundi sínum. Um er að ræða þjónustuhús með veitingasölu, ásamt salernisaðstöðu fyrir ferðamenn en samkvæmt Knúti Óskarssyni, sem rekur Farfuglaheimilið Ósar, fara fjölmargir ferðamenn um land Ósa ár hvert, m.a. til að skoða Hvítserk og selalátur við Sigríðarstaðarsand.
„Þetta verkefni er ekki komið á stað, en við vonumst til að það verði fljótlega,“ segir Knútur og segir verkefnið vera að frumkvæði Ferðamálastofu.
„Ferðamálastofa og Arkís arkitektar hafa gert með sér samkomulag um þróun á teikningum og öðrum fylgigögnum af vistvænum þjónustukjörnum á ferðamannastöðum. Um er að ræða lausn sem byggir á vistvænni hugsun og íslenskri byggingarhefð, er einfalt að laga að aðstæðum á hverjum stað, hefur hagnýtt notkunargildi og er á viðráðanlegu verði,“ segir á heimasíðu Ferðamálastofu.
Nánari upplýsingar um verkefnið má finna hér á vefsíðu Ferðamálastofu.