Leyndarmál vinsælast á Rás 2

Lagið Leyndarmál eftir Húnvetninginn Ásgeir Trausta Einarsson trónir á toppi Vinsældarlista Rásar 2 þessa vikuna en lagið er sína áttundu viku á vinsældarlista Rásar 2. Norðanátt.is greinir frá þessu.

Leyndarmál er einnig í 3. sæti á netlista Kanans og í 4. sæti á X-Dominos lista á X-inu 077. Lagið Sumargestur, sem einnig er eftir Ásgeir, er einnig að finna á netlista Kanans og situr það í 6. sæti listans.

Ásgeir Trausti er kominn með YouTube-rás og þar er m.a. hægt að sjá upptöku af lagi Heimförin sem verður á væntanlegri plötu hans Dýrð í Dauðaþögn.

Ásgeir Trausti er alinn upp á Laugarbakka í Húnaþing vestra, af foreldrum sínum þeim Einari Georg Einarssyni kennara og Pálínu Fanney Skúladóttur kennara og organista.

 

Fleiri fréttir