Líður að bjórhátíðinni Hólasumbl

Bjórhátíðin Hólasumbl hefst á Hólum laugardaginn 27. ágúst og verður þar fjölbreytt dagskrá í boði. Þar á meðal verða bjórkynningar, þar sem smakkað verður á hinum ýmsum gerðum af íslenskum bjór, hægt að spreyta sig í kútarúllkeppni og loks verður kosning um besta bjór hátíðarinnar. 

Dagskrá:

  • 14:00 - 14:20   Setning og kynning á Bjórsetri Íslands
  • 15:00 - 15:20   Egils
  • 15:20 - 15:40   Kaldi
  • 15:40 - 16:00   Útvík - Gæðingur
  • 16:00 - 16:20   Víking/Vífilfell
  • 16:20 - 16:40   Ölvisholt
  • 16:00 - 18:00   Kútarúllukeppni
  • 17:00 - 17:30   Fræðsluhorn Valgeirs
  • 18:00 - 20:00   Hamborgaragrill
  • 20:00               Verðlaunaafhending

Aðgangseyrir á hátíðina er 4500 kr. Innifalið er glas, merkt Bjórsetri Íslands, þrír bjórmiðar og miði fyrir hamborgara frá Ferðaþjónustunni á Hólum. Aldurstakmark er 20 ár.

Hægt er að kaupa fleiri bjórmiða á 400 kr. stk. Nánari upplýsingar eru fáanlegar hjá bjorsetur@mail.holar.is

Á meðan bjórhátíðin stendur yfir verður opið í Bjórsetri Íslands og í brugghúsinu Mjólkurhúsið.

Á sama tíma mun einnig fara fram nytjamarkaður kvenfélags Hólahrepps og svokölluð Rikini hátíð. Ef gestir vilja bóka sér gistingu á staðnum er hægt að gera það hér: booking@mail.holar.is.

Fleiri fréttir