Líf og fjör á Lífsins gæði og gleði

Atvinnulífssýning Skagafjarðar - Lífsins gæði og gleði hófst kl. 10 í morgun og er óhætt að segja að líf og fjör sé í íþróttahúsinu á Sauðárkróki um þessar mundir.

„Á sýningunni  eru á sjötta tug bása og um 100 sýnendur ,“ segir Sigfús Ingi Sigfússon verkefnastjóri hjá Sveitarfélaginu Skagafirði í samtali við Feyki. Hann segir málstofurnar hafa farið vel af stað með spennandi umræðum  og þá hafa nokkrir stigið á svið, m.a. Kvennakórinn Sóldís sem tók lagið fyrir sýningargesti og konur úr Pilsaþyt var með sýningu á íslenskum þjóðbúningum.

Fjölmörg atriði eru framundan en  Kl. 15:00 voru krakkar frá Tindastóli vera með uppboð, kl. 15:30 mun Vodafone kynna úrslit í getraun og svo munu Sunna og Tinna sem voru fulltrúar FNV í Söngkeppni framhaldsskólanna  taka svo lagið kl. 16. „Það er fullt af fólki í húsinu og hér ríkir mikil gleði og ánægja,“ segir Sigfús. Sýningin verður opin til kl. 17 í dag.

Sæluvikan sett á sunnudag       

Atvinnulífssýning verður svo opin frá kl. 10-16 á morgun. Þá verður einnig margt um að vera en þá mun m.a. Ásta B. Pálmadóttir sveitarstjóri setja Sæluvikuna kl. 14:30. Karlakórinn Heimir ætlar að taka lagið og úrslit úr Vísnakeppninni verða kynnt. Einnig mun Alþýðulist standa fyrir tískusýningu á ýmsum ullarvörum.

 

 

Fleiri fréttir