Lífsins blómasystur komin út
Bókin Lífsins blómasystur er komin út og fjallar hún um hannyrðakonur af Svaðastaðaætt í Skagafirði. Höfundur er Sigrún Ingibjörg Arnardóttir, eða Inga Arnar eins og hún er jafnan kölluð, þjóðfræðingur og fata- og textílkennari.
Bókin byggir á rannsóknum hennar á sögu og handverki kvenna af Svaðastaðaætt í tengslum við lokaverkefni hennar til MA-prófs í Hagnýtri menningarmiðlun við HÍ.
Á Svaðastöðum bjó sama ættin nær óslitið í tvær aldir. Ábúendur þar hafa löngum verið þekktir fyrir góðhestakyn og konur af Svaðastaðaætt voru ekki síður annálaðar fyrir hannyrðir. Þær miðluðu þekkingu sinni áfram til næstu kynslóða og bæði handverk og merkilegir munir hafa varðveist frá þeim, allt frá ættmóðurinni Rannveigu Jóhannesdóttur, sem var fædd árið 1797.
Inga Arnar hefur rannsakað þennan skagfirska menningararf og í bókinni fjallar hún ítarlega um konurnar, sögu þeirra og handverk.
Byggðasafn Skagfirðinga gaf bókina út með styrk frá Menningarráði Norðurlands vestra.
Bókina er hægt að fá hjá Byggðasafni Skagfirðinga og í helstu bókaverslunum. Frekari upplýsingar veitir höfundur á netfanginu ingaarnar@simnet.is eða í síma 899 9877.
Heimild: Byggðasafn Skagfirðinga