Lilja María meðal skagfirskra Ólympíufara

Í gær birtist hér á vefnum frétt þess efnis að Trausti Sveinsson á Bjarnagili hefði keppt á Ólympíuleikum í Austurríki árið 1976. Þar var jafnframt óskað eftir upplýsingum um fleiri Skagfirska Ólympíufara. Ábending hefur borist um að Lilja María Snorradóttir hafi keppt á Ólympíuleikum fatlaðra fyrir 26 árum, í Seoul í Kóreu árið 1988.

Lilja María Snorradóttir gerði sér auk þess lítið fyrir og vann til gullverðlauna í flokki A2 sem í dag er flokkur S9 í sundi, en hún sigraði þá í 200 m fjórsundi. Íslandsmetið hennar í greininni stendur enn, en það setti Lilja fjórum árum eftir mótið í Seoul eða á Ólympíumótinu í Barcelona 1992.

Leikarnir í Seoul voru jafnframt fyrstu Ólympíuleikar fatlaðra þar sem keppnin varð raunverulega hliðstæð Ólympíuleikunum var 1988 í Seoul í Kóreu. Þá höfðu keppendur sitt eigið þorp, og notuðu sömu staði til keppni og almennu Ólympíuleikarnir, samkvæmt Vísindavef Háskóla Íslands.

Þess má geta að Lilja María var árið 1988 kjörin Norðlendingur ársins af hlustendum svæðisútvarps ríkisútvarpsins á Akureyri. Hlustendur hringdu þá inn og greiddu atkvæði, og var Lilja kjörin með miklum yfirburðum.

Samkvæmt þessu hafa að minnsta kosti þrír Skagfirðingar keppt á Ólympíuleikum til þessa, Trausti árið 1976, Lilja María árið 1988 og Sævar árið 2014. Gaman væri að heyra um fleiri skagfirska og húnvetnska Ólympíufara.

Fleiri fréttir