„Listin að hugleiða“ á Sauðárkróki
feykir.is
Skagafjörður
15.10.2013
kl. 08.51
Hugleiðslunámskeið verður haldið á Sauðárkróki lau. 19. október og seinni hlutinn laugardaginn 26. október og standa bæði yfir frá kl. 11:00-12:00 og 13:00-14:00. Námskeiðið sem ætlað er byrjendum jafnt sem lengra komnum fer fram í Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki, FNV stofu 201.
„Kenndar verða einfaldar hugleiðsluæfingar sem miða að því að byggja upp innri frið og styrk sem gagnast við að takast á við áskoranir daglegs lífs,“ segir í tilkynningu frá Lótushúsi. Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis en kostnaði er mætt með frjálsum framlögum.
Skráning og nánari upplýsingar: S: 662 3111, lotushus@lotushus.is www.lotushus.is